Arnór Sigurðsson leikmaður CSKA Moskvu er þriðji Íslendingurinn til að skora í Meistaradeild Evrópu. Það gerði hann gegn Roma í kvöld.
Hann og Hörður Björgvin Magnússon voru báðir í byrjunarliði CSKA en Herði var vikið af velli, hann fékk tvö gul spjöld.
Smelltu hér til að sjá mark Arnórs.
Arnór er þar með kominn í hóp með Eiði Smára Guðjohnsen og Alfreð Finnbogasyni sem skorað hafa í riðlakeppni Meistaradeildarinnar eða á seinni stigum.
Saga Arnórs er merkileg en hann er fæddur árið 1999 á Akranesi en var keyptur frá Norköpping í Svíþjóð í sumar.