Sögur eru á kreiki um að Guðjón Þórðarson gerist þálfari Kórdrengjanna í 3. deild karla fyrir næstu leiktíð. Þetta kom fram í Dr. Football, hlaðvarpsþætti Hjörvars Hafliðasonar í dag.
Hjörvar kom þessa sögu sem heyrst hefur á síðustu dögum og vikum. Guðjón er einn sigursælasti þjálfari í sögu Íslands.
Hann hefur verið án starfs síðustu ár en hann var síðast með Grindavík og BÍ/Bolungarvík
,,Voru þið búnir að heyra það að Gaui Þórðar sé að skoða það að taka við Kórdrengjunum?,“ sagði Hjörvar.
,,Ég heyrði þetta í Kaplakrika á laugardaginn, það væri rosalegt,“ sagði sérfræðingur þáttarins, Kristján Óli Sigurðsson.
Hjörvar á búning liðsins og lofar að nota hann ef Guðjón fær starfið.
,,Ég á Kórdrengja búning, ég mæti í honum á völlinn ef Gaui tekur við þeim,“ sagði Hjörvar en Kórdrengir eru þriggja ára gamallt félag sem stefnir hátt.
Þáttur dagsins er hér að neðan.