Aron Einar Gunnarsson verður að öllum líkindum í byrjunarliði Cardiff á morgun er liðið fær erfitt verkefni.
Cardiff heimsækir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en mikill munur hefur verið á gengi liðanna á leiktíðinni.
Cardiff er með fimm stig í 17. sæti deildarinnar en Liverpool situr á toppnum með Manchester City með heil 23 stig.
Liverpool mun tefla fram sterku liði í leiknum á Anfield á morgun en allar stjörnur liðsins eru heilar fyrir viðureignina.
Upplýsingar um leikinn:
Laugardagur – 14:00
Leikstaður – Anfield
Á síðustu leiktíð – Engin viðureign
Dómari – Stuart Attwell
Stuðlar á Lengjunni:
Liverpool – 1,05
Jafntefli – 5,75
Cardiff – 15,02
Meiðsli:
Liverpool – Henderson, Keita, Oxlade-Chamberlain
Cardiff – Madine (tæpur), Mendez-Laing, Peltier, Ralls, Ward
Líkleg byrjunarlið: