Hópur leikmanna Manchester United hefur fengið nóg af því hversu lélegt félagið er í því að skipuleggja ferðalög félagsins.
Í tvígang hefur United mætt alltof seint til leiks í leiki Meistaradeildinni á heimavelli.
Rútuferð sem á að taka stutta stund hefur tekið alltof langan tíma og leikmenn fá lélegan og lítinn undirbúning.
Fjöldi leikmanna neitaði að mæta í tökur fyrir auglýsingar í gær á vegum félagsins.
Með þessu vilja leikmenn mótmæla því hvernig félagið hefur staðið sig í því að skipuleggja ferðlög liðsins.