Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
———-
Anthony Martial ætlar að hunsa áhuga Juventus, PSG og FC Bayern til að framlengja dvöl sína hjá Manchester United. (ESPN)
Manchester United er undir pessu frá samstarfsaðilum sínum að selja ekki Paul Pogba. (Mail)
Stuðlar á að Zlatan Ibrahimovic snúi aftur til Manchester United lækka. (Sun)
Manchester City íhugar að kaupa Alex Sandro bakvörð JUventus. (Sun)
Manchester City vill Ritsu Doan miðjumann frá Japan í janúar en hann spilar fyrir Groningen. (Mirror)
Chelsea fær 9,5 milljónir punda ef Antonio Conte tekur við Real Madrid. (Sun)
Everton fer ekki á nýjan heimavöll sinn fyrr en í fyrsta lagi 2023. (Telegraph)
Jose Mourinho hefur fengið viðvörun að lætin í honum séu að skemma ímynd félagsins. (Sun)
Arsenal skoðar Nicolas Tagliafico vinstri bakvörð Ajax. (Calcio)
Juventus ætlar að reyna að kaupa Sandro Tonali miðjumann Brescia en Chelsea hefur líka áhuga. Hann er 18 ára gamall. (Tutto)
Wolves, Leicester, Southampton og Fulham hafa áhuga á Joao Maria miðjumanni Inter sem hefur ekkert spilað á þessu tíambili. (Calcio)
Wolves vill fá þrjá leikmenn í janúarog er framherji efstur á óskalistanum. (Telegraph)