Luke Shaw, leikmaður Manchester United, segir að leikmenn liðsins hafi sýnt Juventus of mikla virðingu í leik liðanna í gær.
Shaw og félagar töpuðu 1-0 á Old Trafford en liðið sýndi nánast ekkert í fyrri hálfleik sem Shaw veit sjálfur.
,,Í fyrri hálfleik þá sýndum við þeim allt of mikla virðingu og leyfðum þeim að spila of auðveldlega,“ sagði Shaw.
,,Við reyndum meira í síðari hálfleik og enn og aftur þá spiluðum við betur þar en sköpuðum þó ekki of mörg færi.“
,,Eins og ég sagði, við sýndum þeim of mikla virðingu. Við æfðum okkur fyrir þennan leik og við vissum hvað var að koma.“
,,Þeir fengu of mikinn tíma með boltann í fyrri hálfleik og við áttum að pressa meira. Valencia vann þó ekki og nú verðum við að fara til Juventus og ná í úrslit.“