Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn hefur lokað en það er samt alltaf fullt af sögum enda hætta erlend blöð aldrei að grafa upp sögurnar sem fljúga.
Hér má sjá pakka dagsins.
Marcos Alonso, leikmaður Chelsea, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem rennur út árið 2023. (ESPN)
Mauro Icardi, leikmaður Inter Milan, hefur engan áhuga á að yfirgefa félagið á næstunni. (AS)
Real Madrid þarf að borga 18 milljónir evra ef félagið rekur stjóra sinn, Julen Lopetegui. (Sport)
Lopetegui verður þó rekinn og mun Santiago Solari, þjálfari varaliðs Real, taka við liðinu. (Star)
Toby Alderweireld, leikmaður Tottenham, er opinn fyrir því að spila aftur fyrir Ajax í framtíðinni. (Sky Sports)
Victor Moses, leikmaður Chelsea, er tilbúinn að yfirgefa félagið í janúarglugganum. (Goal)
Gerardo Martino, fyrrum stjóri Barcelona, er talinn vera að taka við mexíkóska landsliðinu. (CBS)