Bayern Munchen vann sigur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld er liðið heimsótti AEK Athens.
Bayern gerði jafntefli við Ajax í síðustu umferð á heimavelli en svaraði fyrir sig í kvöld með góðum 2-0 sigri.
Javi Martinez kom Bayern yfir á 61. mínútu leiksins áður en Robert Lewandowski gerði út um leikinn stuttu síðar.
Young Boys frá Sviss og Valencia áttust við á sama tíma en þeim leik lauk með 1-1 jafntefli í Sviss.
Michy Batshuayi kom Valencia yfir í fyrri hálfleik áður en Guillaume Hoarau tryggði Young Boys stig úr vítaspyrnu.