fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Segir að leikmenn Chelsea vilji ekki gefa á samherja sinn – Treysta honum ekki

Victor Pálsson
Sunnudaginn 21. október 2018 10:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir Eden Hazard og Willian, leikmenn Chelsea, treysta ekki samherja sínum hjá félaginu, Alvaro Morata.

Þetta segir Ruud Gullit, fyrrum leikmaður liðsins en Morata hefur verið í töluverðu basli á leiktíðinni.

Gullit telur að Hazard og Willian vilji ekki gefa á Morata og vilji frekar finna aðra leið að marki andstæðingsins.

,,Þeir koma sér ekki í stöður þar sem þeir geta skapað eitthvað fyrir hann,“ sagði Gullit við beIN Sports.

,,Það versta við þetta er að Willian og Hazard rekja alltaf boltann því þeir treysta honum ekki.“

,,Það er erfitt fyrir framherja að spila með þessum tveimur leikmönnum sem sækja inn á völlinn, þú veist ekki hvert þú átt að fara.“

,,Líka þegar fyrirgjafir koma inn, það kom augnablik í fyrri hálfleik þar sem þú hugsaðir ‘hvar er Morata?’ Hann var ekki þarna svo þeir treysta honum ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið

Slot telur nánast öruggt að tilboði Liverpool verði tekið
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“
433Sport
Í gær

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Í gær

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Chelsea væri í fallsæti án Palmer