Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United, vissi að hann myndi ná árangri hjá Manchester United er hann samdi við félagið 2004.
Rooney fór 18 ára gamall til United en hann var handviss um að hann myndi komast í sögubækurnar hjá félaginu.
,,Mér fannst ég alltaf vera nógu góður og ég vildi taka við þessari áskorun,“ sagði Rooney.
,,Ég ólst upp horfandi á úrvalsdeildina. Ég veit að það er mikið talað um Meistaradeildina og hvað hún er mikilvæg en enski titillinn er sérstakur.“
,,Ég spilaði einn frammi 2009/2010 og skoraði 34 mörk. Ég man eftir að hafa farið útaf með eitt eða tvö mark í leiknum en fannst ég samt ekki hafa verið partur af leiknum.“
,,Það var mjög skrítið. Það var var tími þar sem ég lærði að vera þolinmóður og bíða eftir tækifærunum.“
,,Ég vildi alltaf vera með í leiknum. Ég vissi það þó að sem framherji þá þarftu að gera helstu vinnuna inni í vítateignum.“