Jose Mourinho, stjóri Manchester United, gæti átt yfir höfði sér refsingu eftir atvik sem kom upp á Stamford Bridge í gær.
Mourinho brást þá reiður við eftir jöfnunarmark Chelsea er Ítalinn Marco Ianni ákvað að fagna fyrir framan Portúgalann.
Ianni er partur af þjálfarateymi Maurizio Sarri hjá Chelsea og er einnig talið að honum verði refsað.
Talað er nú um að Mourinho verði refsað fyrir viðbrögð sín en hann ætlaði að ráðast á Ianni sem kom sér þó fljótt burt.
Sarri hefur sjálfur sagt að hann ætli að höndla mál Ianni sjálfur og mun líklega refsa honum fyrir fagnið.
Ianni bað síðar Mourinho afsökunar en Sarri skipaði aðstoðarmanni sínum að koma hlutunum í lag áður en haldið var heim.