Anthony Martial, leikmaður Manchester United, hefur rætt samband sitt við Jose Mourinho, stjóra liðsins.
Fjallað hefur verið um samband tvímenningana á öllu tímabilinu og er talað um að það sé slæmt.
Martial gerði tvö mörk í 2-2 jafntefli við Chelsea í gær og hló ásamt Mourinho eftir að hafa verið tekinn af velli.
Frakkinn segir að samband þeirra sé afar venjulegt og að það séu engin vandamál til staðar.
,,Samband okkar hefur aldrei verið stirt til að byrja með,“ sagði Martial við blaðamenn.
,,Sambandið er eins og hjá leikmanni og þjálfara og ég vona að það haldi áfram og ég mun reyna að gefa Manchester United eins mikið og ég get.“