Strasbourg 2-1 Monaco
1-0 Adrian Thomasson
2-0 Lebo Mothiba
2-1 Youri Tielemans(víti)
Thierry Henry stýrði Monaco í sínum fyrsta leik í kvöld er liðið spilaði við Strasbourg í efstu deild í Frakklandi.
Henry var ráðinn til Monaco á dögunum en gengi liðsins hefur verið hræðilegt á leiktíðinni.
Strasbourg hafði betur með tveimur mörkum gegn einu á heimavelli og er Monaco enn í fallsæti.
Monaco situr í næst neðsta sæti deildarinnar eftir tíu umferðir og er með sex stig. Liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð.