Manchester United á Englandi hefur verið sektað af UEFA eftir atvik sem kom upp fyrr á tímabilinu.
Leikur United og Valencia í Meistaradeildinni hófst ekki fyrr en 20:05 eða 20 mínútum eftir áætlaðan tíma.
Leikmenn United voru fastir í umferð á leið á völlinn og var rúta liðsins of sein á Old Trafford.
UEFA sýnir enga vorkunn þegar kemur að þessum málum og hefur sektað United um 15 þúsund evrur.
Einnig hefur Napoli verið sektað um 34 þúsund evrur fyrir atvik sem kom upp gegn Liverpool.
Kveikt var á flugeldum í 1-0 sigri Napoli á Liverpool á Ítalíu sem er stranglega bannað og fær félagið því refsingu.