Leikmenn Liverpool á Englandi voru steinhissa þegar Chelsea ákvað að bjóða 50 milljónir punda í Fernando Torres árið 2011.
Þetta segir Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool en hann var samherji Torres á þessum tíma.
Torres lenti í vandræðum áður en hann samdi við Chelsea og héldu þau áfram eftir félagaskiptin.
Spánverjinn þótti einfaldlega ekki vera sami leikmaður og hann var og vissu leikmenn Liverpool það.
,,Þó að við höfðum aldrei getað sagt það opinberlega á þessum tíma þá voru flestir steinhissa í búningsklefanum,“ sagði Carragher.
,,Við töldum að Chelsea hefði ekki séð hann síðustu 12 mánuðina. Við vissum að Chelsea hafði ekki fengið leikmanninn sem þeir héldu að þeir væru að fá.“