Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur tjáð sig um miðjumanninn Fabinho sem hefur lítið komið við sögu á tímabilinu.
Fabinho kom til Liverpool frá Monaco í sumar en hefur ekki tekist að brjóta sér leið í liðið enn sem komið er.
Klopp segir að Fabinho hafi ekki verið tilbúinn í að spila en nú styttist í að hann fái tækifæri.
,,Hann er nálægt þessu. Við höfum rætt saman og hann þarf að venjast ýmsu, það þurfa allir að gera,“ sagði Klopp.
,,Þú þarft að vera tilbúinn, þannig er það. Ég þarf að taka ákvörðun um hvort einhver sé tilbúinn eða ekki.“
,,Við höfum tekið ákvörðun um að hann sé rétti leikmaðurinn fyrir okkur. Nú stöndum við saman.“