fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433

Klopp hefði getað talað við kaffivélina sína – ,,Enginn hefur áhuga á því sem ég segi“

Victor Pálsson
Föstudaginn 19. október 2018 17:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur ekki farið leynt með það að hann þoli ekki Þjóðadeild UEFA.

Klopp vill að leikmenn fá meira frí eftir að hafa spilað með félagsliðum og Þjóðadeildin kemur í veg fyrir það.

Klopp sagði Þjóðadeildina vera tilgangslaustu keppni heims fyrr í mánuðinum og heldur nú áfram.

,,Þú vilt ekki sjá boxarann Anthony Joshua slást annað hvert kvöld. Það er ekki hægt og gerist ekki í öðrum íþróttum,“ sagði Klopp.

,,Amerískur fótbolti er með alvöru, langt hlé. Körfubolti er með sumardeild. Þetta er bara fótboltinn.“

,,Allir vilja keppni þar sem þú getur fallið, komist upp og spilað upp á eitthvað. Við verðum þó að spyrja okkur að því hvort við viljum heyra óperu á hverju kvöldi eða á tveggja mánaða fresti?“

,,Mér líkar við samkeppni en á einhverjum tímapunkti þarf einhver að taka skref aftur og hugsa um leikmennina, hvernig getum við séð til þess að þeir standi sig?“

,,Þjóðadeildin er góð hugmynd en gerið það í annarri íþrótt. Það er ekkert pláss fyrir hana hérna.“

,,Ég hefði getað sagt þetta við kaffivélina mína því það hefur enginn áhuga á þessu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla
433Sport
Í gær

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool
433Sport
Í gær

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“