Nana Opoku Ampomah, leikmaður Waasland-Beveren í Belgíu, vonast til að spila fyrir lið Arsenal einn daginn.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur staðið sig vel á tímabilinu og er með fimm mörk í níu leikjum á vængnum.
Það eru nokkur lið sem hafa sýnt Ampomah áhuga en hann vonast til að spila á Englandi.
,,Manni dreymir um að spila fyrir Chelsea, Manchester United eða Arsenal en ef þau reyna aldrei við þig þá rætist draumurinn aldrei,“ sagði Ampomah.
,,Ég verð bara að leggja hart að mér og einbeita mér að mínum leik og við sjáum hversu langt ég kemst.“
,,Mér líkar mest við Arsenal vegna leikstílsins. Það er eitt af þeim liðum sem ég elskaði í æsku svo mér líkar mjög vel við Arsenal.“