Samkvæmt enskum blöðum hefur Chelsea fengið nóg af Alvaro Morata og vill félagið selja hann í janúar.
Morata er ekki að finna sig í Lundúnum en hann er á sínu öðru tímabili hjá félaginu.
Framherjinn kom til félagsins á Real Madrid en Manchester United hætti skyndilega við að kaupa hann.
United ákvað frekar að taka Romelu Lukaku en Morata byrjaði frábærlega hjá Chelsea.
Sagt er að Maurizio Sarri stjóri Chelsea hafi fengið leyfi til að kaupa framherja í janúar en Olivier Giroud er einnig hjá félaginu.