Zlatan Ibrahimovic, leikmaður LA Galaxy, er opinn fyrir því að ræða við sitt fyrrum félag, AC Milan.
Þetta segir umboðsmaður leikmannsins Mino Raiola en Zlatan hefur verið orðaður við Milan síðustu daga.
,,Eins og staðan er þá er þetta ekki möguleiki þar sem við höfum rætt við félagið og ekkert varð úr því,“ sagði Raiola.
,,Það er nú loksins eðlilegt fólk sem er við stjórnvölin hjá Milan og það er hægt að treysta fólki þarna.“
,,Ég mun ekki opna þessar dyr né loka þeim. Við sjáum hvað gerist.“