Stuðningsmenn Manchester United á Englandi rífast reglulega um það hvaða leikmenn eigi að spila í miðverði hjá félaginu.
Þeir Eric Bailly, Victor Lindelof, Chris Smalling, Marcos Rojo og Phil Jones koma allir til greina til að spila þá stöðu.
Jose Mourinho hefur þurft að gera breytingar á liðinu í vetur bæði vegna meiðsla og vegna slakrar frammistöðu.
Samkvæmt tölfræðinni þá á hafsentapar United að vera þeir Lindelof og Bailly en þeir vinna flesta leiki.
Lindelof hefur unnið 69% af leikjum sínum á tímabilinu og Bailly 66,7 prósent. Þar á eftir kemur Chris Smalling með 61,7 prósent.
Phil Jones er með afar slæmt sigurhlutfall á leiktíðinni og hefur aðeins unnið 49 prósent af þeim leikjum sem hann spilar.
Eru Lindelof of Bailly bestu miðverðir United? Láttu okkur vita!