Chelsea á Englandi mun gera allt til þess að halda sóknarmanninum Eden Hazard á næsta ári.
Þetta segir stjórnarformaður Chelsea, Bruce Buck en hann var spurður út í framtíð Belganns í dag.
Hazard gæti verið á förum frá Chelsea næsta sumar en hann vill spila fyrir spænska stórliðið Real Madrid.
Hazard á tvö ár eftir af samningi sínum og mun Chelsea gera allt til þess að framlengja við hann.
,,Við viljum halda honum og við munum gera allt sem þarf til að fá hann til að vera hér áfram,“ sagði Buck.
,,Allir stuðningsmenn Chelsea í London og um allan heim elska Eden Hazard. Hann er ekki bara frábær fótboltamaður heldur einnig frábær náungi.“