Samkvæmt enskum götublöðum er framherjinn Anthony Martial að skrifa undir nýjan samning við Manchester United.
Framtíð Martial hefru verið í umræðunni undanfarið en Tottenham og Chelsea hafa sýnt honum áhuga.
Samband Martial við Jose Mourinho er þá talið slæmt en Portúgalinn hefur nú gefið grænt ljós á að leikmaðurinn fái samning.
Sagt er að Martial skrifi undir fimm ára samning á Old Trafford og fær hann 130 þúsund pund á viku.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur hrifið Mourinho undanfarið eftir að það andaði köldu á milli þeirra fyrr á leiktíðinni.
Mourinho vildi upphaflega losna við Frakkann en hann hefur nú tekið U-beygju í þessu máli.