James Rodriguez er búinn að yfirgefa lið Real Madrid endanlega að mati goðsagnarinar og landa hans, Carlos Valderrama.
James hefur undanfarið tvö tímabil verið í láni hjá Bayern Munchen en Real taldi sig ekki geta notað hann.
Valderrama telur að James sé mjög ánægður þar sem hann er í dag og býst við að ferill hans á Spáni sé búinn.
,,James lítur mjög vel út og lítur út fyrir að vera ánægður hjá Bayern Munchen,“ sagði Valderrama.
,,Fyrsta að hann hefur ekki snúið til baka til Real hingað til þá held ég að hann muni aldrei gera það.“
Barcelona má kaupa James endanlega næsta sumar fyrir 42 milljónir evra.