Tottenham í ensku úrvalsdeildinni hefur áhuga á að kaupa varnarmann Bournemouth, Nathan Ake á næsta ári.
Sky Sports greinir frá þessu í dag en Ake hefur þótt standa sig vel hjá Bournemouth eftir að hafa komið frá Chelsea.
Ake samdi við Bournemouth á síðasta ári og samkvæmt Sky er hann nú á óskalista Mauricio Pochettino.
Tottenham keypti engan leikmann í sumarglugganum en mun styrkja raðirnar fyrir næsta tímabil.
Ake getur spilað í miðverði og bakverði og er hann orðinn partur af hollenska landsliðinu.
Þeir Toby Alderweireld og Jan Vertonghen verða samningslausir næsta sumar og gætu verið á förum frá Tottenham.