Barcelona er byrjað að teikna upp plan til að kaupa Roberto Firmino frá Liverpool. Ok Diario fjallar um málið.
Sagt er að Börsungar vilji kaupa Firmino næsta sumar og losa sig við Luis Suarez.
Suarez hefur misst flugið og ekki verið líklegur til afreka síðustu mánuði.
Börsungar vilja því styrkja framlínu sína og vilja sameina Firmino og Philippe Coutinho á nýjan leik.
,,Suarez á í vandræðum og Börsungar skoða að gera sömu hluti og þeir gerðu til að fá Coutinho,“ sagði Eduardo Inda, blaðamaður á Spáni um málið.
,,Það er líklegast að Barcelona reyni að kaupa Firmino næsta sumar frekar en í janúar.“