Dómarinn sem fer með mál Arda Turan í Tyrklandi fer fram á 12 ára fangelsi yfir kappanum.
Turan er sakaður um kynferðislega áreitni, líkamsárás og fyrir að hafa verið með ólögleg vopn á sér.
Hann buffaði poppstjörnu í heimalandi sínu en Turan er í herbúðum Istanbul Basaksehir.
Hann gekk í raðir félagsins á síðustu leiktíð frá Barcelona þar sem hlutirnir gengu ekki vel.
Turan er skaphundur sem er að reynast honum dýrkeypt þessa stundina.