Einn stuðningsmaður Englands missti sig í gleðinni í gær en enskir mæta Spánverjum á útivelli í kvöld.
Leikurinn fer fram í Sevilla en þar gerðu enskir stuðningsmenn sér glaðan dag í gær.
Stuðningsmennirnir misstu sig þó aðeins í gleðinni og aðalega einn af þeim.
Hann keypti sér flösku af Sambuca og tók hana svo gott sem í einum sopa. Það kom í bakið á hönum skömmu síðar.
Stuðningsmaðurinn féll niður og var fluttur á sjúkrahús þar sem dæla þurfti upp úr honum.
Stuðningsmaðurinn ætti að losna af sjúrakhúsinu í dag og verður líklega mættur á völlinn í kvöld.