Nathan Ake, leikmaður Bournemouth, segir að Manchester United hafi ekki sýnt sér áhuga eins og sögusagnir hafa verið um.
Ake hefur verið orðaður við United síðustu daga og er félagið sagt tilbúið að borga Bournemouth 40 milljónir punda.
Ake hefur sjálfur ekkert heyrt og nennir lítið að pæla í sögusögnum sem eru bara til á netinu.,
,,Ég hef séð þetta í augnablik en þetta eru bara sögusagnir,“ sagði Ake í samtali við Voetbal.
,,Eins og staðan er þá spila ég fyrir Bournemouth og það gengur vel svo ég einbeiti mér að því.“
,,Þetta eru orðrómar á internetinu og svo lengu sem ég heyri ekkert sjálfur þá pæli ég ekki í þessu.“