Það fer fram stórleikur í Þjóðadeildinni á morgun er enska landsliðið mætir því spænska.
Leikurinn fer fram á Spáni og eru þeir spænsku taldir sigurstranglegri fyrir leikinn á heimavelli.
Tölfræðin hjálpar ekki enska liðinu en það eru yfir 30 ár síðan enskur leikmaður skoraði á Spáni með landsliðinu.
Það var Gary Lineker sem skoraði síðasta enska markið á Spáni en hann kom boltanum í netið árið 1987 í 4-2 sigri.
Liðin áttust síðast við þann 8. september en þá hafði Spánn betur með tveimur mörkum gegn einu.
Síðast þegar England heimsótti Spán unnu heimamenn 2-0 sigur árið 2015. Fyrir það mættust liðin árið 2009 og hafði Spánn einnig betur 2-0 í þeim leik.