Chelsea á Englandi hefur boðið miðjumanninum N’Golo Kante nýjan samning en enskir miðlar greina frá þessu í dag.
Kante kom til Chelsea fyrir tveimur árum frá Leicester City og er einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins í dag.
Kante var sterklega orðaður við Paris Saint-Germain í sumar og staðfesti það nýlega að liðið hafi sýnt sér áhuga.
Chelsea vill alls ekki missa Kante sem á þó enn þrjú ár eftir af samningi sínum á Stamford Bridge.
Félagið hefur nú boðið Kante nýjan samning með góðri launahækkun og vonast til að hræða PSG burt.