fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
433

Hazard lofar að gera ekki það sama og Courtois

Victor Pálsson
Sunnudaginn 14. október 2018 18:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eden Hazard, leikmaður Chelsea á Englandi, segir að hann muni aldrei leitast eftir því að yfirgefa Chelsea á slæmum nótum.

Chelsea hefur gert mikið fyrir Hazard síðustu sex ár eftir að hann kom frá Lille í Frakklandi árið 2012.

Belginn vildi komast til Real Madrid í sumar en Chelsea kom í veg fyrir það og bannaði honum að fara.

Thibaut Courtois yfirgaf Chelsea fyrir Real í sumar en neyddi félagið til þess að selja sig og hótaði ýmsu illu samkvæmt fjölmiðlum.

,,Chelsea gerði hlutina mjög skýra fyrir mér í sumar. Ég mátti ekki fara og ég sætti mig við það,“ sagði Hazard.

,,Hvort sem ég myndi fara eða ekki þá yrði ég ánægður. Ég sé alls ekki eftir þessari ákvörðun.“

,,Þú gætir verið pirraður um tíma og oftast þá áttu síðasta orðið. Ég mun hins vegar aldrei byrja eitthvað vesen við Chelsea.“

,,Chelsea hefur gefið mér svo mikið. Ég yfirgaf Lille á góðum nótum og ég vil gera það sama hérna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi
433Sport
Í gær

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“
433Sport
Í gær

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“