Fred, leikmaður Manchester United, segir að hann hafi fylgst mikið með enska boltanum er hann var yngri.
Fred var sérstaklega hrifinn af Arsenal en fyrirmynd hans lék á miðjunni á Highbury á sínum tíma.
Fred gekk í raðir United fyrir þetta tímabil og nefnir einnig leikmenn Rauðu Djöflanna sem hann var hrifinn af.
,,Ég fylgdist mikið með enskum fótbolta og veit að deildin hefur alltaf verið sterk,“ sagði Fred.
,,Ég horfði á lið eins og Manchester City, Chelsea og Arsenal, þegar Gilberto Silva spilaði þar.“
,,Ég leit upp til margra leikmann eins og Gilberto, Thierry Henry, Ryan Giggs og Paul Scholes.“