Stjórn Manchester United hefur engan rétt á að kvarta yfir stjóra félagsins, Jose Mourinho þrátt fyrir slæmt gengi undanfarið.
Þetta segir Markus Babbel, fyrrum leikmaður Liverpool en hann fór yfir stöðu mála hjá United í samtali við Omnisport.
Babbel segir að United hafi vitað hvernig þjálfari Mourinho var áður en hann var ráðinn til starfa
,,Þetta er ekki Mourinho að kenna. Þú ræður hann í starfið og þú veist hvað þú færð,“ sagði Babbel.
,,Það eru allir hissa á því að þeir séu ekki að spila sóknarbolta. Það er ekki Mourinho. Mourinho er varnarsinnaður og vinnur bikara. Hann hefur gert það hingað til.“
,,Fyrir mér þá er vandamálið stjórnin því þeir ákváðu að taka hann. Núna eru þeir að gera það sem hann vill ekki, þeir eru ekki að sýna honum traust.“
,,Jafnvel Manchester United veit ekki hvað það vill. Þetta er klikkun, ég trúi þessu ekki.“