Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal, býst við að liðið muni lenda í miklu veseni í ensku úrvalsdeildinni bráðlega.
Merson hefur fylgst vel með liðinu á tímabilinu og hefur alls ekki verið hrifinn af varnarleiknum undir stjórn Unai Emery.
Merson býst við að eitthvað lið muni valta yfir Arsenal bráðlega ef Emery nær ekki að laga vörn liðsins.
,,Fyrr eða seinna þá munu þeir fá mjög mörg mörk á sig í leik, varnarlega eru þeir út um allt,“ sagði Merson.
,,Það eina sem kemur þeim úr vandræðum er að þeir ná altaf að skora mörk. Varnarlega eru þeir ekki nógu góðir.“
Arsenal byrjaði tímabilið á tveimur tapleikjum en hefur unnið alla leiki sína síðan þá.