Xerdan Shaqiri leikmaður Liverpool býr í Manchester og ætlar sér ekkert að breyta því.
Shaqiri bjó í Manchester þegar hann var í herbúðum Stoke og ákvað að flytja ekkert.
Hann hefur aldrei farið í miðborg Liverpool og ætlar sér ekki að fara þangað.
,,Ég bý í Manchester, sama húsi og þegar ég var í Stoke,“ segir Shaqiri en um klukkutíma akstur er á æfingu.
,,Ég hef aldrei komið í miðborg Liverpool, ég hef farið á eitt hótel þarna sem við gistum stundum á.“
,,Leikmenn segja að það sé erfitt að fara niður í bæ, fólk áreitir mann mikið.“