Leonardo Bonucci, leikmaður Juventus, viðurkennir það að hann sjái eftir því að hafa samið við AC Milan í fyrra.
Bonucci samdi við við AC Milan nokkuð óvænt síðasta sumar en var aðeins hjá félaginu í eitt ár.
Bonucci var reiður hjá Juventus og ákvað að fara en hann lenti í rifrildum við Massimiliano Allegri, stjóra liðsins. Hann samdi svo aftur við félagið í sumar.
,,Þegar þú starfar með kláru og þroskuðu fólki þá er allt skýrt, þú tekur í höndina á þeim og vinnur að því að ná sömu markmiðum,“ sagði Bonucci.
,,Að fara var erfið ákvörðun sem var tekin í reiði. Það hefur kennt mér það að þegar þú ert reiður þá áttu í hættu á að taka ranga ákvörðun.“
,,Hlutir höfðu átt sér stað undanfarna fjóra mánuði hjá Juventus og það hafði áhrif á stoltið og mér fannst ég ekki vera nógu góður.“