Ólafi Kristjánssyni þjálfara FH mistókst að koma liðinu í Evrópusæti á sínu fyrsta tímabili. 16 ár í röð í Evrópu eru á enda.
Stigafjöldinn var hins vegar meiri hjá FH í ár en Ólafur tók við af Heimi Guðjónssyni fyrir tæpu ári.
Miklar breytingar hafa verið á leikmannahópi FH og má búast við þvi að þær verði enn fleiri.
,,Óli Kristjáns fær fleiri stig en Heimir fékk í fyrra, það nægði ekki. 37 stig skiluðu fimmta sæti, þau duga vanalega í meira en það,“ sagði Hjörvar Hafliðason í hlaðvarpsþætti sínum, Dr. Football.
Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur þáttarins segir að það sé ekki hægt að fara í svona leik þegar FH endar í fimmta sæti.
,,Þú ferð ekki í þennan leik eftir að FH kemst ekki í Evrópu í fyrsta sinn í 16 ár, Heimir fór alla vegana í Evrópu. Þetta var bara ellefu liða deild, Heimir tapaði bikarúrslitum líka.“
,,Þettau eru væntanlega gríðarleg vonbrigði í Hafnarfirði, ég myndi stokka vel upp í þessum leikmannahópi. Losa þessa útlendingahersveit frá A-Z, nema Lennon. Hann er í öðrum gæðaflokki.“
Þáttur dagsins er hér að neðan.