Arturo Vidal gekk í raðir Barcelona í sumar eftir dvöl hjá þýska stórliðinu Bayern Munchen.
Vidal hefur ekki fengið fast sæti í liði Barcelona undir stjórn Ernesto Valverde og er óánægður.
Vidal er vanur að fá að spila í hverri viku og viðurkennir hann að hann sé ekki ánægður þessa stundina.
,,Ég er ekki ánægður en ef það eru vandamál á milli mín og þjálfarans þá ræði ég það við hann,“ sagði Vidal.
,,Hvernig á ég að gera ánægður þegar ég fæ ekki að spila? Ég er einhver sem hefur alltaf barist og spilað fyrir bestu lið heims og unnið allt saman.“
,,Ég vil halda áfram að vinna með Barcelona. Ég er í góðu standi en hef verið smá pirraður í síðustu leikjum. Það eru þó mikilvægari leikir eftir og við sjáum til.“