Paul Pogba, leikmaður Manchester United, segir að hann eigi ekki skilið að vinna Ballon d’Or verðlaunin á þessu ári.
Ballon d’Or verðlaunin eru afhent þeim leikmanni sem stendur sig best á hverju ári eða í öðrum orðum, besta leikmanni heims.
Pogba er tilnefndur ásamt 29 öðrum leikmönnum en hann nefnir fjóra sérstaklega sem eiga verðlaunin frekar skilið.
,,Hvort sem það séu Antoine Griezmann, Kylian Mbappe eða Raphael Varane, þeir eiga þetta miklu meira skilið en ég,“ sagði Pogba.
,,Ég get ekki valið einn af þeim en ég vona af öllu hjarta að einn af þeim vinni verðlaunin.“
,,Einn af þeim fjórum því N’Golo Kante er líka þarna. Það er það sem ég vona því það eru margir sem eiga þetta skilið. Ég tek sjálfan mig ekki með.“