Margt hefur bent til þess að Thierry Henry verði næsti knattspyrnustjóri Aston Villa síðustu daga.
Nú virðist eitthvað vera að breytast en sögur eru á kreiki um að Henry hafi slitið viðræðum.
Henry er aðstoðarþjálfari Belgíu en honum langar að taka að sér starf á næstunni.
Nú berast fregnir frá Frakklandi að Monaco ætli sér að reka Leonardo Jardim úr starfi.
Sagt er að félagið hafi nú þegar rætt við Henry en hann var á sínum tíma leikmaður félagsins.
Það gæti heillað Henry að byrja í frönsku úrvalsdeildinni áður en hann fer aftur til Englands.