Ragnar Sigurðsson gekk til liðs við Rostov í gærkvöldi en þetta staðfesti hann í samtali við 433.is.
Hann kemur til félagsins frá Rubin Kazan en eftir að hafa ekki fengið greidd laun frá félaginu ákvað hann að róa á önnur mið.
Hann skrifar undir samning við félagið út tímabilið og er laus allra mála hjá Fulham.
Hjá Rostov hittir hann fyrir þá Björn Bergmann Sigurðarson og Sverrir Inga Ingason, liðsfélaga sína hjá íslenska landsliðinu og þá hefur Hörður Björgvin Magnússon einnig verið orðaður við félagið að undanförnu.
Hann tók sína fyrstu æfingu með liðinu í morgun en myndband af hans fyrsta degi með Rostov má sjá hér fyrir neðan.