Maccabi Haifa tók á móti Maccabi Tel Aviv í ísraelsku úrvalsdeildinni í kvöld en leiknum lauk með 3-1 sigri gestanna.
Það tók Viðar Örn Kjartansson tíu sekúndur að koma Tel Aviv yfir í leiknum og staðan því 1-0 í hálfleik.
Viðar skoraði svo annað mark leiksins á 54. mínútu áður en Nikita Rukavytsya minnkaði muninn á 66. mínútu.
Cristian Battocchio gerði svo út um leikinn á 85. mínútu og niðurstaðan 3-1 sigur gestanna sem eru nú í öðru sæti deildarinnar með 38 stig, jafn mörg stig og Hapoel Beer Sheva sem er á toppnum.