fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433

Mourinho: Viltu að ég fari?

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 25. september 2018 21:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Mourinho, stjóri Manchester United, ræddi við fjölmiðla í kvöld eftir leik liðsins við Derby í deildarbikarnum.

Mourinho og félagar eru úr leik í keppninn en Derby vann í vítakeppni á Old Trafford. Phil Jones reyndist skúrkurinn á punktinum.

,,Það sem gerðist er að við skoruðum ekki þegar við gátum í fyrri hálfleik. Við fengum tækifærin til þess, til að drepa leikinn,“ sagði Mourinho.

,,Ég sagði það sama í hálfleik í dag og um helgina. Þeirra lið hafði trú á verkefninu og spilaði mjög vel og við þurftum að drepa leikinn en gerðum það ekki.“

,,Ég vildi ekki sjá svona viðbrögð eftir jöfnunarmarkið, ég vildi fara og vinna leikinn. Eftir rauða spjaldið vorum við í erfiðri stöðu.“

,,Svo kemur að vítakeppninni og einhver þarf að klúðra. Þegar ég sá að sex eða sjö voru búnir að taka víti þá vissi ég að við værum í vandræðum með Eric Bailly og Phil Jones.“

,,Ég er ekki að gagnrýna þá? Ég tel að það sé ekki rétt. Viltu að ég fari eða viltu að ég ræði leikinn? Á ég að segja að við höfum átt frábæran leik?“

,,Ég hef ekki áhyggjur af deildarbikarnum lengur því við spilum ekki hér fyrr en á næstu leiktíð. Ég væri að ljúga ef ég myndi segja að við hefðum kastað leiknum frá okkur, við vildum vinna og ég er vonsvikinn með jafnteflið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður
433
Fyrir 19 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Algjör U-beygja hjá Xavi

Algjör U-beygja hjá Xavi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
433Sport
Í gær

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Í gær

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag