Andri Rúnar Bjarnason reyndist hetja Helsingborg í dag er liðið mætti Frej í sænsku B deildinni.
Andri hefur verið duglegur að skora fyrir Helsingborg síðan hann kom til félagsins frá Grindavík.
Andri skoraði tvennu síðasta leik Helsingborg gegn Brage er liðið vann sannfærandi 4-1 sigur.
Andri skoraði svo eina mark leiksins í dag fyrir Helsingborg en mark hans kom á 91. mínútu í uppbótartíma.
Helsingborg stefnir á að komast upp um deild og situr liðið í efsta sæti deildarinnar með 54 stig.