Jón Daði Böðvarsson var að sjálfsögðu í byrjunarliði Reading í dag sem mætti Hull í ensku Championship-deildinni.
Jón Daði hefur verið einn besti leikmaður Reading á tímabilinu og hefur verið iðinn við kolann hingað til.
Reading vann flottan 3-0 heimasigur á Hull og skoraði Jón Daði annað mark liðsins í sigrinum.
Birkir Bjarnason er úti í kuldanum hjá Aston Villa en hann hefur lítið fengið að spila undanfarið.
Hann kom ekkert við sögu í dag er liðið tapaði nokkuð óvænt 2-1 heima gegn Sheffield Wednesday.