Srdjan Tufegdzic eða Túfa, þjálfari KA, var ánægður með sína menn í kvöld eftir 1-1 jafntefli við Stjörnuna í Garðabæ.
,,Þetta var hörkuleikur, færi á báða bóga en mér fannst enn og aftur í stöðunni 1-0 þá fáum við dauðafæri til að afgreiða leikinn en það gerist ekki,“ sagði Túfa.
,,Við erum að spila gegn liði sem er að keppa um titla hverja helgi og unnu titil í síðustu viku.“
,,Eitt stig maður, maður verður að vera ánægður en til að taka næsta skref þá hefði ég viljað skora annað markið og fara heim með þrjú stig.“
Túfa lætur af störfum sem þjálfari KA eftir tímabilið en hann vill kveðja á góðan hátt.
,,Allir sem þekkja mig vita að ég er atvinnumaður út í gegn og undirbúningurinn fyrir þennan leik var alveg í botni og það sást.“