Bernd Leno, markvörður Arsenal á Englandi, mun fá tækifæri á morgun er liðið spilar í Evrópudeildinni.
Þetta var staðfest í dag en Leno gekk í raðir Arsenal frá þýska liðinu Bayer Leverkusen í sumar.
Leno hefur síðan þá ekki spilað keppnisleik en Petr Cech hefur staðið í markinu líkt og á síðustu leiktíð.
Leno mun nú loksins fá tækifæri í byrjunarliði Arsenal er liðið spilar við Vorskla Poltava.
Leno þekkir það að spila í Evrópukeppni en hann var lengi aðalmarkvörður Leverkusen.