Nacho Monreal, leikmaður Arsenal á Englandi, hefur staðfest það að hann sé í viðræðum við félagið um að skrifa undir nýjan samning.
Monreal hefur staðið sig með prýði á tímabilinu en hann hefur verið hjá Arsenal í fimm ár.
Monreal á að baki 165 leiki fyrir enska stórliðið en hann kom upphaflega frá Malaga árið 2013.
,,Eins og staðan er þá erum við í viðræðum við félagið. Ég hef alltaf sagt að mér líði mjög vel,” sagði Monreal.
,,Það gerir mig mjög glaðan að spila fyrir Arsenal. Ég kom hingað fyrir sex árum og samband okkar er gott.”