U21 ára lið karla mætir Slóvakíu í undankeppni EM 2019 á þriðjudaginn. Leikurinn fer fram á Alvogenvellinum og hefst hann klukkan 15:30.
Strákarnir mættu Eistlandi á fimmtudaginn og unnu þar frábæran 5-2 sigur. Með sigri gegn Slóvökum fer Ísland í annað sæti riðilsins.
Ísland þarf að vinna síðust þrjá leikina sína til að eiga möguleika á að fara í umspil um laust sæti.